D bekkur

bestur síðan 2006

14.05.2008 02:10:28 / dbekkur

alveg að koma sumarfrí...

Hæhæ
ég heyrði einhvern orðróm af því í skólanum í dag að það yrði fagn líka fyrripartinn á föstudaginn næsta uppí Kennó... heyrði eitthvað minnst á vatnsstríð... þannig að það verður þá kannski auglýst ef það á að vera.
Þið vitið þá bara af því ;)

Hvað syngur annars í ykkur? Eru ekki flestir að verða búnir?

Kveðja
Ingunn

Picture of Spring - Free Pictures - FreeFoto.com

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 13:24:35 / Aldis pæja

Partý

Fyrirpartý heima hjá mér á miðvikudaginn.

Mæting um 7 leitið.

Komdu.

Skrifaðu komment og láttu mig vita hvort þú kemur.

Viðhengi velkomin.

Það verður gaman.

Lov jú!

Aldís pæja

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 17:53:22 / dbekkur

TIL HAMINGJU

LINDA OG HAFDÍS MEÐ LITLU PRINSANA TVO.:d

Ég legg til að þið setjið eins og eina mynd hvor á síðuna.

Ástarkveðjur frá bekknum.

Næsta miðvikudag (23. apríl) verður að öllum líkindum grill í hádeginu í Kennó. Allir að mæta! Vúhúúúú!!!!

Einnig hef ég heyrt orðróm um að það verði bjórkvöld um kvöldið sem er ekki slæmt þar sem enginn kennsla er á fimmtudaginn því þá er sumardagurinn fyrsti.

Ég legg til að við fjölmennum eins og brjálæðingar á bjórkvöldið. Ég er meira en tilbúin til að bjóða ykkur velkomin heim til mín (í húsið á bílastæðinu í Kennó) í smá fyrirpartý og hópknús.

Líst ykkur ekki vel á þetta guys? Látið þetta berast, berast, berast. Hvetjið fólk til að kíkja á síðuna.

Ég gat ekki fyrir mitt litla líf munað lykilorðið á síðuna og ég efast ekki um að fleiri eru í sömu vandræðum, enda er síðan dauðari en plantan í glugganum mínum! Ég bjó til nýjan notanda sem allir geta notað (ég mælist samt til þess að það verði einungis d-bekkingar). Endilega reynið að skrifa e-ð á síðuna. Þó það sé ekki nema innkaupalistinn fyrir morgundaginn.

notendanafn: dbekkur
lykilorð: dbekkur

Annað í fréttum er það að síðan krafðist þess af mér að breyta slóðinni á síðuna en gamla slóðin virkar!!! Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta virkar...en það virkar.

Ykkar, Aldís pæja

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 09:08:18 / d-bekkur_2006

22 ára afmæli =)

Þó svo að ég eigi ekki afmæli fyrr en þann heilaga prófdag 14. desember ætla ég að halda upp á afmælið mitt með bestu vinkonu minni Önnu Möggu n.k. laugardag:

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket 

.........og ykkur elsku bekkjarsystkinum mínum er boðið! Endilega kíkið við og fáið ykkur einn með okkur =)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 15:58:44 / Aldis pæja

Partý: JIBBÝ!

Ólræt.

Það verður partý hjá mér lau. 27. okt. að Bólstaðarhlíð 23 (á bak við hamar), inngangur E (Elsku Aldís Er í E) 2. hæð til vinstri.

mæting um 8 leitið

Minni á KARÓKÍKVÖLDIÐ sem er föstudaginn 2. nóvember. Þar verður margt um dýrðir og dásemdir.

Láttu allar D-dúllur sem á vegi þínum verða vita og láttu sjá þig.

Aldís pæja


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 14:16:22 / Aldis pæja

Elskurnar mínar

Mikið sakna ég ykkar allra. Við hittumst ekki nema í skamma stund á mánudögum. Ég legg til að við höldum partý. Jibbý! Ég get haldið það í litlu íbúðinni minni, það er bara spurning hvenær þið viljið koma. Endilega látið mig vita og bendið öllum á að lesa þessa færslu. Ykkar heitt-elskandi, Aldís pæja

» 18 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 10:59:02 / d-bekkur_2006

Laugarvatnsferð

HÆHÆ allir

Ég var að pæla hvort það væru einhverjir sem ætluðu að skella sér á laugarvatn á föstudaginn. Ég hef mikinn áhuga á því að fara enda var alveg brjálað fjör síðast þegar við fórum. Það væri því algjer snilld ef þið mynduð commenta hérna inná ef þið ætlið að fara og komið með uppástungu um það hvað við gætum klætt okkur í;)

ég vona að  það séu einhverjir sem hafa áhuga. hlakka til að heyra í ykkur og ég mana alla í það að skella sér í þessa ferð:)

kv. Þórunn Jóns


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 19:37:54 / d-bekkur_2006

Bjórkvöld

Jæja samnemendur!

Eigum við ekki að byrja misserið með style (hehehe american style) og mæta á bjórkvöldið Föstudaginn 24. ágúst 2007? Þá eru allir búnir í prófum sem slugsuðu aðeins seinasta ár og eru að bæta það upp núna og þá veitir þeim ekki af smá upplyftingu!

Ég segi að við fjölmennum og tökum EKKI grillið á þetta!

Mætum öll ♥ höfum reunion og hittum alla vitleysingana sem eru að byrja í skólanum okkar!!!

 Mæting í Fjöruna, Mötuneytið í Kennó, föstudaginn 24. ágúst 2007, kl 20.00 á slaginu!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 13:48:03 / Hafdís

Grillhittingur

Jæja....

þar sem Sunna og Selma eru að fara á vit ævintýranna er planið að hittast og grilla og drekka bjór í blíðunni. Það er spurning hvort allir sjái ekki bara um sitt sjálfir og þá tilvalið að fólk hópi sig saman. Að öllum líkindum henta þessar tvær helgar sem eftir eru þangað til þær fara ekki nógu vel í hitting þar sem það er ansi mikið um að vera sem myndi væntanlega draga úr aðsókn í herlegheitin. Því neyðumst við til að hafa þetta á virkum degi og vonum við að fimmtudagurinn 16. ágúst henti flestum vel :haha:

Hvar: Portið í Kennó

Hvenær: 16. ágúst, stundvíslega kl.18.30

Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar í commentum. 

 Bestu kveðjur

Nefndin :$ 


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 09:42:00 / Ásta Björg

Til hamingju, X2

tvöfallt afmæli í dag :D

Jóhanna og Þórunn fæddust á þessum dýrðardegi fyrir 100 árum síðan, báðar komnar langleiðina á fertugsaldurinn en bera hann bara vel að mér skilst (auðvitað ekkert búin að sjá þær síðan um prófin). Hafið það rosa gott í sumar og njótið dagsins vel

 

[johanna+og+thorunn.JPG]

 

kv. ásta Bj


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 01:33:32 / Elín Ólöf

Próflokadjammið!!

Jæja loksins búin að setja myndirnar í tölvuna...

Þetta voru svoldið margar myndir þannig að ég setti þetta á tvær síður...próflokadjamm og próflokadjamm frh..

og gerði þetta að sjálfsögðu á minn hátt...kann ekki ykkar hátt..hehe

enjoy...

Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:13:53 / d-bekkur_2006

Þið VERÐIÐ að tékka á þessu!!!!

Þó að þetta sé í pínustund að hlaðast inn þá verðið þið að þrauka!!! 

 http://www.carmex-kiss.de/index.php?meintanz=477366437195

Sorrý Gunni minn, en ég gat hreinlega ekki látið þetta fara framhjá bekknum...eða neinum eiginlega :lol:

 Kyss kyss kallinn minn ;)

En þið hin... njótið vel :haha:

Bestu kveðjur

Hafdís

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:42:59 / d-bekkur_2006

Takk fyrir veturinn og frábært partý!!!

Vil bara nota tækifærið og þakka fyrir veturinn og brjálæðislega vel heppnað bekkjarpartý (sorrý þið sem komust ekki, misstuð að miklu). Gunna stóð sig eins og hetja á grillinu og er sko gestgjafi af bestu gerð! En vonandi skemmtu allir sér jafnvel og ég og helst aðeins betur þar sem ég kom nánast blá og marin heim eftir mikið traðk og troð á dansgólfinu á Celtic Cross :frown:

Í sumar ætla ég að vera vaktstjóri í Mosfellsbakaríi og hafa það heavy næs. Verð að vinna frá 7 - 13 (14) alla virka daga  og ekkert um helgar. Verð s.s. massa brún og sæt eftir pottalegu dauðans í sumar :lol:

Annars væri gaman að frétta af ykkur í sumar og vonandi hittumst við ekki niðri í skóla í uppitökuprófum 8|

Knús og klessukossar og kveðjur

Hafdís

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 12:54:41 / d-bekkur_2006

Party in da house...


Jæja krúttin mín.. og þar með talið litla partyanimalið...

þá er komið að grillpartýinu mikla....

Mér datt í huga að við mundum hittast á milli 17 og 18 og grilla eitthvað frábærlegt..:lol:



Ég ætla að sjá um sósur, salat og kartöflur.. datt í hug hvot þið vilduð ekki koma ykkur saman um kjötið.. Held að það sé nokkuð sanngjarnt bara.. svo kemur hver og einn með guðaveigar að eigin vali hvort sem þær eru áfengar eða ekki.. en sennilega þó allar áfengar hehehe....8|



Síðan brunum við öll niður í skóla á próflokadjammið þar og þeir sem vilja geta farið áfram á meira djamm í bæinn eða hvað veit ég..



Endilega kommenterið á þetta fyrirkomulag, þetta er bara hugmynd....:$



Mig hlakkar til að sjá ykkur öll í fínu formi og þemað er “CASUAL” og vona að þið hafið nú eitthvað til að hlakka til líka á meðan við tökum á síðasta áfanganum og rúllum þessari íslensku upp... allir með ???? :lol:



Gangi ykkur alltaf sem allra best... :haha:

Kveðja

Gunna

» 21 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 11:42:42 / d-bekkur_2006

Partí partí....?

Jæja gott fólk, eru ekki allir komnir með nóg af þessum lestri og lærdómi og spenntir í að sletta úr sér klaufunum aldeilis á föstudaginn??????
Allavega ég:lol:

En Gunna okkar frjálslynda var búin að segjast getað haldið parti þannig að það er spurning hvort að það boð gildi enn?

Svo er annað, eigum við ekki að fara á próflokadjammið upp í skóla og það væri gaman að hittast fyrst SNEMMA og grilla eða borða saman (kannski um 5-6)8)

 

Hvernig lýst ykkur á þetta?

 

Das partíanimal


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Könnun
Bjórkvöld á miðvikudaginn
2 atkvæði

Nei
1 atkvæði

Já já
0 atkvæði

Nei nei
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 3